Shipping policy
World Champion Records ehf (kt.: 5101083020) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar einu sinni í viku, svona oftast. Sé varan ekki til á lager mun verða haft samband við þig hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. World Champion Records ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá World Champion Records ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Allar pantanir eru sendar sem rekjanlegir pakkar.
Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru án virðisaukaskatts en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Allar vörur eru sendar með Íslandspósti beint heim að dyrum. Ef móttakandi er ekki heima og pakki of stór fyrir lúgu fer hún á næsta Pósthús. Við sérstök tilefni keyrir starfsfólk World Champion Records vörur heim í stað Íslandspósts en gjald er það sama.