Chimichurri
Hér er uppskrift að chimichurri ef það dýrindis sull skyldi hafa farið framhjá þér í lífinu.
- Feitt búnt eða ½ bolli af ferskri steinselju, saxað í drasl
- Heill rauður chillipipar eða tveir litlir, fræin tekin úr og piparinn skorinn smátt, þú mátt nota þurrkaðar flögur í staðinn og þá eru það 1-2 tsk (eftir smekk)
- 3-4 hvítlauksrif, söxuð smátt
- ¾ tsk þurrkað Oregano
- 2 msk rauðvínsedik, hægt að nota sítrónusafa í staðinn en alls ekki hvítvíns- eða öðruvísi edik því það breytir bragðinu of mikið
- Aðeins minna en ½ bolli ólívuolía eða sólblómaolía
- 1 tsk gróft salt
- Pipar, eftir smekk, sirka ½ tsk
Fyrst blandarðu öllu saman nema olíunni og edikinu. Svo hellirðu vökvunum út í og hrærir saman. Best að láta þetta standa í 2 klst en að minnsta kosti í 10 mínútur svo kryddið nái að bragðbæta olíuna. Ég veit ekki hvað þetta geymist lengi en þetta verður frekar glatað í ísskáp svo það er betra að hafa þetta á borðinu og nota næstu tvo daga. Kjötætur geta glussað þessu á grillað kjöt og kjúkling en ég er lítið fyrir dýrahræ og nota þetta í allskonar letihauga mat eins og vefjur og pítur til bragðauka. Í versta falli dýfi ég brauði ofan í þetta. Ég tek fram að ég borða eins og að ég trúi ekki á hjartaáföll.
Ég minni svo á að athuga uppruna hráefnis. Það væri verra að styðja óvart þjóðarmorð þegar þig langaði bara að lífga upp á tilveruna með nýrri kryddolíu.
Chimichurri er kennt við Argentínu, Úrúgvæ og Baskaland. Takk Matt Groening fyrir að láta mig hugsa um Simpsons í hvert einasta skipti sem ég hugsa um Úrúgvæ og Kúala Lúmpúr.
Lausleg þýðing á baskneska orðið tximitxurri er: „hitt og þetta sull blandað saman í engri sérstakri röð“ og ég kýs að trúa þessu þrátt fyrir óáreiðanleika upplýsinga um þessar mundir og þá á ég við að ég fann þetta á internetinu. Ég ætlaði að blaðra meira en eyddi allri minni andlegu orku í myndasöguna. Smjörið í sögunni hefur ekkert með uppskriftina að gera en innblásturinn kemur frá fituríku mataræði mínu. Vinnustofan er opin mið-fös 12-16 þó svo að þar sé varla hræðu að finna. Ég er bara að reyna að vera ekki of óþolandi búðarloka og hafa einhvern stöðugleika í lífinu.